Færsluflokkur: Bloggar

V.R. VeRst Í Heimi

vr_burt_721482.jpg

Ekki bara það að hin siðspillta sjálfsupptekna stjórn vr sé ónýt. Heldur er félagið ónýtt í heild. Það er engin samstaða meðal félaga vr sem voru eins og barnir hundar á vinnustöðum sínum líkt og hvert annað fórnarlamb heimilisofbeldis, til að vinna fyrir skuldum útrásar sjálfstæðismanna undir forustu Björgólfs feðga og Geirs Haarde.

Fulla virðingu mína og stuðning skulu þeir huguðu menn og konur fá sem mættu á staðinn og létu í ljós óánægju sína yfir spillingu og ábyrgðarleysi stjórnar vr í hádeiginu í dag og veit ég um að mun fleiri félagsmenn voru með þeim í huga þó þeir neyddust til að vera á vinnustöðum sínum.

vr_burt_2.jpg

 

 

 

 Ekki sá neinn á skrifstofu vr neina ástæðu til að ræða við félagsmenn sína enda starfar vr fyrir aðra hagsmuni.

Ég legg til að atvinnurekendur gangi á bak hálftíma matartímasamningum við vr næstu viku og hvetji fólk sitt til að taka þátt í að standa upp fyrir rétti sínum og láta stuðning sinn og vilja í ljós í verki ásamt því að öðlast sjálfsvirðingu sína aftur. Það mun skila fyrirtækjunum mun afkastameiri og ánægðari starfsmönnum og ekki minnst kannski bjarga þessu félagi sem hefur brotið á síðustu árum félagsmenn sína gjörsamlega niður og samstöðu milli þeirra

Saga mín og reynsla af vr.

Í hinu svokallaða góðæri var ég starfsmaður í einu af stærstu verslunar fyrirtæki á sínu sviði sem sölumaður.

Ég vann þar í tvö ár. Eftir eitt ár skipti fyrirtækið um eigendur sem lofuðu okkur öryggi og öllu fögru sem þeir sviku. Vr sá ekkert athugunarvert við það.

Allt næsta ár gekk útá smá uppsagnir eingöngu á starfsmönnum með 2 ára starfsreynslu eða meira og í búðinni sem ég vann í var aldrei færri en 5 manns sagt upp á mánuði. Þetta var vegna hagræðingar, engar frekari upplýsingar var þörf því eins og stjórn Vr sagði þá höfðu þeir gert hina frábæru samninga fyrir okkur að fyrirtækin þyrftu ekki að tilgreina ástæður uppsagna vegna þess að við þyrftum það ekki heldur.

HÚRRA!!!

Allir vissu hina raunverulegu ástæðu sem var að fólk með 2 ára starf eða meira hafði of mikil réttindi gagnvart fyrirtækinu og auk þess var hægt að spara peninga á því að ráða inn nýtt fólk með mun minni launaréttindi og þetta lítur voða vel út á blaði. Vr fannst ekkert athugunarvert við slíka starfshætti.

Nú þegar ég var fluttur milli búða var vinnutími minn aukinn að einum þriðja og samt hækkaði ekki talan á launaseðli mínum. Í december var einnig bætt við okkur vinnutíma á sömu launum. Allt þetta eftir samningum Vr um mánaðarlaun.

Það kom líka að því að velja átti trúnaðarmenn og þegar að því kom sat ég hjá yfirmönnum fyrirtækisins þar sem þeir ræddu sín á milli hvern þeir ættu að styðja til slíks. Nokkra vildu þeir ekki sjá því þeir gætu verið með kjaft, en það skipti ekki máli eins og einn yfirmannanna sagði ef þeir hegða sér ekki þá bara rekum við hann, við höfum gert það áður... Svo var hlegið. Allt án athugunarsemda frá vr.

Ég man líka eftir fréttatilkiningu frá vr að ef við yrðum veik í einn dag fengjum við hann ekki borgaðan þar sem brögð hefðu verið að því að fólk misnotaði veikindadaga, þannig fólk varð að taka 2 veikindaga ásamt læknisvottorði ef það ætti að hafa einhvern rétt og þetta fundu þeir upp að sínu eigin frumhvæði. Þá spurði ég mig ? fyrir hverja vinna þessir menn ?

Svo kom að því að jól nálguðust og 2 samstarfsmenn mínir fóru til fjölskyldna sinna út á land að halda gleðileg jól. Til að dekka upp starfsmanna tapið stóðum við tveir eftir í þessari deild aukavaktir til að gæta hag fyrirtækisins milli jóla og nýárs.

Fyrir nýa árið var 5 í viðbót sagt upp, allt starfsmenn með 2 ár uppí tíu. Ég prísaði mig sælan enda leið öllum illa í búðinni þetta árið, við vorum í stöðugu óöryggi um störf okkar sem tölur á blaði ekki persónur fyrir utan það að fyrrverandi verslunarstjóri hafði samið við mig um laun rétt áður en hann hætti sem voru samkvæmt iðnaðarmanna taxta og töluvert hærri en yfirmenn höfðu ætlað sér og hafði verið mál út af því á sínum tíma. Þannig ég bjóst jafnt og þétt við að fá það í hausinn.

Á gamlársdag hringir hjá mer dyrabjallan og er þar einn yfirmanna fyrirtækisins mættur. Hann er með uppsagnarbréf í hendinni og hafði víst gleymt að segja mér upp störfum. Hann var mættur heim til mín svo uppsögnin gæti tekið gildi frá mánaðarmótunum. Uppsagnarbréfið var dagsett nokkrum dögum fyrr  og samkvæmt lögum eiga yfirmenn alltaf að vera 2 saman þegar að uppsögn kemur en þarna var hann einn. Ég vil taka það fram að þetta var góður maður sem hafði einnig útvegað mér vinnu annarstaðar og fékk fyrirtækið til að borga mér út uppsagnarfrestinn uppsögnin var ekki hans ákvörðun.

En þetta var kolólögleg uppsögn og vægast sagt siðlaus. Þegar ég svo hringi í Vr eftir áramótin til að leita réttar míns er mér svarað með kjafthætti og þeir tóku endalaust málstað fyrirtækisins og rétt þeirra. Þar á meðal að ekki þyrfti að tilgreina ástæðu uppsagnar sem var engin. svo var mer vísað á einhvern þjónustu fulltrúa og hefði ég alveg eins getað hringt í vinalínuna því svör og aðstoð var engin. ÞEIM VAR SAMA.

Ég spyr mig fyrir hvern er vr ?

þetta er handónýtt félag og held ég að áhrifaríkustu mótmælin væru að hætta að borga félagsgjöld.

Félagar Vr!!

Standið Saman

Þið eruð félagið en ekki gjörónýt, siðlaus stjórn þess sem arðrænir ykkur peningum og rétti.

HÆTTIÐ AÐ BORGA Í FÉLAGIÐ!!!

STOFNIÐ NÝTT.

Mótmælið þangað til. Gerist sýnileg


mbl.is Klanið burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósvifin Flokkspólitísk Hundasálfræði

Þetta er ótrúlegt, algerlega ótrúlegt.

Hvernig fólk notar aðferðarfræði ríkistjórnarinnar til að koma flokkspólitískum vilja sínum á framfæri og móta skoðanir og hugsun fólks með lákúrulegum uppnefnum sem á aðferðarfræði sína í andlegu ofbeldi sem og einelti.

Ég er alveg sammála þessu fólki að ethvað þarf að gera, en að halda áfram að kjafta það eina sem við höfum sem gjaldmiðil í kaf til að koma stefnu samfylkingarinnar á framfæri er meir en lítið ósvífið og frekar til þess fallið að auka vandan en leysa hann.

Ég get ekki séð að þessi kona sé hæf til að gegna stöðu sinni þar sem hún grefur en frekar undan efnahagnum með orðum sínum.

Ekki það ég sé að taka upp hannskann fyrir sjálfstæðisflokkinn heldur er ég að benda á að það stjórnunar kerfið sem við höfum þurft að búa við á íslandi er ónýtt og við þurfum nýtt fólk með nýa aðferðarfræði.

Ég get ekki séð annað en með svona aðferðarfræði sé verið að keyra hlutina áfram með sömu aðferðarfræði og kom okkur á þennan stað fyrir það fyrsta, undir forustu Geirs Haarde sem er óspar á að nota slíka hunda sálfræði hins mentaða auðvalds til að rugla og stýra góðtrúandi almúganum eftir vilja sínum.

Hann var nú hagfræðingur seðlabankans 1982 og byggði einmitt pólitískan frama sinn á hinni sömu aðferðarfræði auk þess sem hann sveik fólk og gekk ósvífinn á bak því.

Það er komið nóg af slíkum skrípaleik og flokka trúarbrögðum.

Farið að vinna vinnuna ykkar af heilindum og reinið einu sinni að hugsa um hag landsins fram fyrir ykkar eigin og flokkana.

Hugsið um hina Íslensku þjóð í dag og framtíð hennar.

Verið heiðarleg

Talið skýrt rétt fram

Nýtt fólk

Nýa aðferðarfræði


mbl.is Koma „krónulufsunni" í gang á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland Engin Framtíð

Það er alltaf að verða ljósara og sýnilegra með hverjum deginum sem líður að á íslandi er engin framtíð.

Hin huglausa og aðgerðarlausa ríkistjórn Geirs H Haarde hefur ekkert gert síðustu 5 vikur annað en ganga milli landa og betla ljúgandi af okkur eiðandi gögnum eftir sjálfa sig rífandi kjaft við landsmenn og þeirra svar við vanda okkar var að hækka stýrivexti og þar með leggja hvert fyrirtæki og heimili í rúst.

Glæsilegt.

Íslandi er stjórnað af sérplægnum hálfvitum.

Plan fyrrum seðlabanka hagfræðingsins Geirs Haarde var víst að æsa fólkið í að reka Davíð úr seðlabankanum svo hann gæti tekið stöðu hans og þorgerður Katrín tekið við forsætisráðherrastólnum.

Í öllu þessu rugli hafa þaug bara hugsað um sjálf sig og eigin völd í stað þess að vinna fyrir fólkið og plottið með þessu sandkasti í augu landsmanna bar næstum árangur.

Jafnvel Bubbi Morteins lét blekkjast 

Sjá qoute í bubba af síðu hanns hér http://www.bubbi.is/index.php?option=com_fireboard&Itemid=20&func=view&id=1225&catid=2

"ég vil Þessa Ríkistjórn burt en ég vil Þorgerði Katrínu Næsta Forsætisráðherra
já furðulegt nei mér finnst það ekki hún er milli tveggja elda þannig séð
en hún skynjar hvað þarf hún sér við verðum að ganga skrefið evran er málið
einfalt hún er leiðtogin sem við þurfum takk fyrir"

En fólkið hefur að hluta snúist á móti þeim sem bera raunverulega ábyrgð á ástandinu og eru líkur til að Davíð kljúfi sjálfstæðisflokkinn til höfuðs Geirs fyrir atlögu hanns að honum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem geir plottar um pólitíska framtíð sína og stingur menn og vini i bakið en í þetta sinn gekk hann of langt og stakk íslensku þjóðina í bakið.

Ef ykkur dettur í hug að þið séuð að losna við þennan aumingja vil ég benda ykkur á að það er ekki svo auðvelt eins og hann skrifaði Obama.

Þá vill geir fyrir hönd ríkistjórnarinnar "ekki íslands eða íslensku þjóðarinnar" óska honum til hamingju og hann hlakkar til að starfa með honum en ekki Íslenska þjóðin.

Þetta segir ýmislegt um eðli hans og að hann hefur ekkert hugsað sér að taka ábyrgð og fara.

hver er staðan nú eftir 5 vikur ?

Jú það er engin framtið fyrir ungt fólk á Íslandi

Eins og Sverrir Stormsker seigir 

ÞETTA ER EKKI ÞJÓÐFÉLAG ÞETTA ER ÞJÓFAFÉLAG!


mbl.is Pólverjar munu lána Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvita eru stjórnvöld ábyrg en taka þaug ábyrgð ?

Ég er svona 50% ánægður með þetta hjá samiðn.

Auðvita á stjórn sem er ábyrg að segja af sér.

það á að krefjast þess að þeir sem komu okkur í þetta taki ábyrgð og segi af sér.

Ekki að byðja þá um lausn á vandanum sem er afleiðing af þeirra stefnu og hugmyndafræði.

Afhverju lýsir engin yfir vantrausti á þessa ríkistjórn á Alþingi þegar þessir ríkistjórn hefur gerst sek um ófyrirgefanleg mistök á mistök ofan og eru rúinn öllu trausti bæði hér heima og í alþjóðasamfélaginu ?

Geir sagði sjálfur

 Ekki benda á mig

ÉG MÆLI MEÐ AÐ ÞIÐ TAKIÐ HANN Á ORÐINU!!!


mbl.is Segir stjórnvöld ábyrg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama fólkið er sömu vandamálinn fast í sömu hugsuninni

Já Þór það er ethvað sem verður að gerast.

EN ÞAÐ MUN EKKI GERAST MEÐ ÞAÐ RÍKISVALD SEM HEFUR STÝRT HÉR SÍÐUSTU 17 ÁR.

Sama fólkið er sömu vandamálinn fast í sömu hugsuninni.

Geir hefur td ekki skipt um taktík og stefnu síðan hann var hagræðingur seðlabankans 1982. 

Og sjáðu hvar við erum stödd í dag og hvaða traust og virðingu við njótum á alþjóðavettvangi eftir þá kynslóð af tækifærissinnum sem situr í ríkistjórn ?

Svo ég vitni í Ögmund Jónason af bloggsíðu hans í dag http://www.ogmundur.is/news.asp?ID=657&type=one&news_ID=4226

Tillögur VG hefðu sparað hundruð milljarða!
Hvað tillögur okkar fram til þessa áhrærir nefni sem augljósasta dæmið frumvörp um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarsjóða, sem komið hefðu í veg fyrir Icesafe henykslið. Ef þessi lagabreyting hefði verið samþykkt hefðu verið líkur á að þjóðinni hefðu sparast hundruð milljarðar! Icesafe reikningarnir gengu nefnilega út á að fá til ráðstöfunar sparifé til að fóðra óseðjandi fjárfestingarófreskju sem átti líf sitt undir því að fá stöðugt fjármagnsstreymi i til að viðhalda sér.

Á þetta benti ég á Alþingi í gær.

Geir fer með staðlausa stafi
Geir H. Haarde brást þá við á eftirfarandi hátt: „Ef það yrði skoðað hvernig lög um regluverk á fjármálamarkaðnum hefðu verið afgreidd á Alþingi á undanförnum árum allt frá því að við gerðumst aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu kæmi í ljós að flestöll lagafrumvörp um þetta efni hafa verið samþykkt samhljóða út úr þinginu, að hvorki Vinstri grænir, forverar þeirra né aðrir stjórnmálaflokkar hafi gert veigamiklar athugasemdir við það regluverk. „

Þetta er grófur útúrsnúningur og þannig starfar þessi ríkistjórn hún heldur sig fast í aðferðarfræði sem löngu er hætt að virka og festir sig í tómum orðum án verka.

Þaug elska að tala og vita enga þá skemmtun ánægjulegri en hlusta á bullið í sjálfum sér meðan þaug þiggja í laun peninga skattgreiðenda fyrir.

Alþingi þarfi sannarlega á sömu hugarfarsbreytingu  að halda þannig að uppgjör þings í þinglok snúist ekki alltaf um hver talaði mest. Það er rétt hjá þér þór.

En til að það getir orðið þarf þetta duglausa sjálfsmiðaða ráðherralið að víkja, og flokkarnir þurfa að stokka sig upp með nýu fólki og nýum markmiðum. 

RÍKISTJÓRNIN VERÐUR AÐ VÍKJA OG TIL NÝRRA KOSNINGA ÞARF AÐ BOÐA SEM FYRST.

Það er kristal tært að ríkistjórn íslands undir forustuGeirs Haarde og vernd samfylkingarinnar mun ekki hugsa hlutina upp á nýtt og beita skapandi hugsun, né verða framtaksaðili á sviði nýsköpunar þar sem þetta lið situr fast við sinn keip ábyrgðarlaust og er meira í mun að halda í stóla sína og flokksvöld heldur en hag borgarana og landsins sjálfs.

Kæru Íslendingar. Þetta er mjög einfalt.

EF EKKERT BREYTIST, ÞÁ BREYTIST EKKERT.

 


mbl.is Mikilvægt að hugsa hlutina upp á nýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg og Geir rúinn trausti og virðingu á alþjóðavettvangi halda að Obama sé nýr möguleiki á vanda þeirra

Ingibjörg heldur í álvöru að ríkistjórn hennar og Geir Haarde, sem er algerlega rúinn trausti á alþjóðavettvangi fyrir þau ófyrirgefanlegu mistök sem þessi ríkistjórn hefur gert, hafi opnast nýir möguleikar með nýjum forseta bandaríkjanna.

Þetta er einfaldlega rangt !

Og svo lengi sem þessi vanhæfa ríkistjórn situr aðgerðarlaus og ráðvillt eins og ormur á ráðherrastólum sínum, spýtandi blekkingar eitri úti samfélagið um að þaug og seðlabankastjórnin njóti virðingar og trausts á alþjóðarvettvangi, og einbeitir sér af því að hylma yfir með þeim fjárglæframönnum sem störfuðu í skjóli og undir vernd þeirra, reinandi að fela það fyrir okkur með þöggun hvað það er sem raunverulega er í gangi, mun það tefja fyrir allri uppbyggingu og viðreisn þess lands sem þaug hafa komið í þá stöðu sem nú er og þaug bera ábyrgð á þannig að eina leiðin út er að afsala landinu alþjóða gjaldeyrissjóðnum.

Mér finnst magnað að þegar fólk verður fyrir atvinnumissi, getur ekki borgað af lánum sinum og missir fasteignir og byggingariðnaðurinn er rústir einar að aðalumræðuefnið á alþingi í gær og áhyggju ráðamanna voru kaup Jóns Ásgeirs á fjölmiðlum ? 

ER ÞAÐ Í RAUN AÐAL VANDAMÁL ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR Í DAG ?

Á EKKERT AÐ GERA FYRIR ÍSLENSKU ÞJÓÐINA

Nei íslendingar það á ekkert að gera fyrir ykkur.

AÐALVANDAMÁL ÍSLANDS Í DAG ER RÍKISSTJÓRN LANDSINS SEM ER ALGJÖRLEGA RÚINN VIRÐINGU OG TRAUSTI Á ALÞJÓÐAVETTVANGI!!

Og Ingibjörg heldur að Obama viti ekki hvað er í gangi hérna?

Að hann geti opnað þessum vanhæfu sérplægnu ráðalausu og siðspiltu stjórnmálamönnum ný tækifæri?

HELDUR INGIBJÖRG AÐ OBAMA HAFI VERIÐ AÐ SKRIÐA ÚTUR STRÁKOFA Í SVÖRTUSTU AFRÍKU ?

Nei Ingibjörg mín. það veit allur heimurinn sannleikann um hvað gerðist á Íslandi nema Íslendingar, en það er að breytast. Fólk er að vakna.

ÞIÐ VERÐIÐ AÐ VÍKJA SVO LANDIÐ EIGI VON.

 post-5051-1113458248.jpg


mbl.is Kjör Obama nýtt tækifæri fyrir Bandaríkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgólfur Thor á pening. Borgaðu þínar skuldir sjálfur strax takk.

það er magnað að einn ríkasti maður heims Björgúlfur Thor sé búinn að vera í greiðslustöðvun frá 7 october og eigi ekki efni á að borga skuldir sínar.

Á sama tíma á hann hlut i eigin nafni 5% í Elísu í Finnlandi og hefur keypt og selt fyrir milljarða króna eignir td landsbankans í Bretlandi og seldi annan hlut í elisu fyrir 26 milljarða.

Honum finnst þetta allt í lagi að láta þetta falla bara á þjáða þjóð sína sem er á barmi gjaldþrots eftir einkarekinn banka hans aðallega.

Eins og athyglisvert blogg Eyþórs Arnalds kemur frammá  að Prófessor Uwe Reinhardt hjá Princeton segir í grein sinni

"Alas, in the intervening months Iceland has been bombed, not by the United States, nor by a nutty professor from Princeton, but by Iceland's own bankers. They have done to that country what 1,000 American bombers most likely could not have done: They drove Iceland's economy to the brink of bankruptcy."

Bera þessir vinir Geir Haarde enga ábyrgð?

Þú segist eiga nóg af peningum Björgólfur Thor

Borgaðu strax

Þú hefur gert okkur nóg.

 

 


mbl.is Samson synjað um framlengingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki að "LÍÐA" fyrir tortryggni heldur er þetta allgjört vantraust.

Það er ótrúlegt að ráðherra í ríkistjórn, sem er gift inni krossatengsl, þar sem þjófnaður og afskriftir og svo rannsóknir á starfseminni. Eru sérhannaðar af feðrum ábyrgðra aðila. Geti haldið öðru eins bulli fram sem og tortryggni sem aumingja hún "líði" fyrir, hún og hennar flokkur sem talar gegn stefnu og markmiðum formanns flokksins, og styðja jafnframt vanhæfasta seðlabankastjóra í sögu íslenska lýðveldisins. Sem vel á minnst var fyrrum forsætisráðherra þeirrar stefnu sem kom Íslandi í þvílíkt gjaldrot og veit ekki hvað varð af peningum seðlabankans.

AÐ ÞAU SKULI DIRFAST AÐ SITJA SEM FASTAST OG ÞIGGJA LAUN FYRIR ÞETTA, OG SEGJAST EINGÖNGU ÆTLA TAKA ÞÁ ÁBYRGÐ AÐ LEIÐA ÞJÓÐINA Í GEGNUM ÞETTA.

Við erum að tala um hina sömu þjóð og 90% af vill seðlabankastjórnina burt og forsætisráðherra dirfðist að svara að það skipti ekki máli hvað þessi 90% fyndist því HANN HEFÐI RÁÐIÐ SEÐLABANKASTJÓRANN, HANN VÆRI Í UMBOÐI HANS OG LÝSTI FULLU TRAUSTI Á HANN.

og við gjöldum fyrir það þorgerður. Fólk verður fyrir atvinnumissi, eignamissi, lífeyrismissi, og einn þriðji þjóðarinnar talar um að flýja land ?

Nú er ég Iðnaðarmaður og hef þekkingu á að samstarfsmenn mínir unnu svart fyrir bláfátækan menntamálaráðherrann í góðærinu, sem er lögbrot og hæfir ekki ráðherra í ríkistjórn hvaða lands sem er. Gaman að minnast á það, þar sem þu talar um ethvað siðferðislega rétt í viðtalinu.

Græðgi ykkar sjálfstæðismanna er ótakmörkuð og spilling ykkar er engum takmörkum háð.

ÞAÐ ER EKKI EINS OG ÞÉR "LÍÐIÐ" FYRIR TRORTRYGGNI, FRÖKEN FÓRNARLAMB.

VIÐ HÖFUM LÝST YFIR ALLGJÖRU VANTRAUSTI Á ÞIG, OG ÞINN FLOKK.

REINDU AÐ FARA AÐ SKILJA ÞAÐ OG KOMA ÞVÍ TIL SKILA TIL GEIRS, EF HANN TALAR VIÐ ÞIG EFTIR STÖÐ TVÖ VIÐTALIÐ.

Á mánudag var ég tekinn gegnum fjárnám, á vafasamri skuld til áætlaðri skuld til ríkisins að upphæð 500 þus kr.

Upphæð sem ég mætti niðrí tollstjóraembætti og bað um frest á vegna ástandsins.Þar sem ég missti vinnuna mína og gat ekki borgað vegna afleiðinga hruns bankana í mínu lífi.

Ég var 7 mánuði undir læknishendi í fyrra og frá vinnu og fór fjárhagslega í rúst, ég var við það að vinna mig útur þvi þegar þetta gerðist.

Ríkið neitar að semja við mig og áætlar á mig. Pappírar frá mér hafa tínst í kerfinu og þið sviptið mig öllum rétti eins og atvinnuleisisbótum sendið mig á félagsmálastofnun og segist ætla semja við mig eftir lögfestingu fjárnáms á upphæð sem er helmingi hærri en raunveruleg skuld mín gagnvart ykkur.

saga mín á einum mánuði er saga margra annara, sem tóku aldrei þátt í þessu.

Mér finnst þetta helvíti hart hæstvirtur menntamálaráðfrú þegar þið afskrifið milljónir þeirra sem almúginn á að borgar skuldirnar fyrir. Við erum að tala um vini þína, samstarfsmenn manns þíns.

Auðvita ertu sek.

Þú ert sek um samsæri gegn hinni íslensku þjóð.

Þið þöguðu okkur í hel.

 

 


mbl.is Óþolandi að líða fyrir tortryggni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvinafagnaður Sjálfstæðismanna - Rotið eðli Geirs Haarde

Ertu búinn að gleyma Björn þegar félagi þinn í Eimreiðarklíkunni gerði atlögu að þér í réttkjörnu sæti þínu 3 sæti framboðs sjálfstæðisflokksins hér back in the days...

óvinafagnaður

Núna er hann aftur að rústa flokknum þínum, landinu þínu og já gegnir hann ekki embættinu sem þú ættir að vera í ? 

Ég veit þú ert eiginlega feginn í dag, come on þvílík niðurlægin að vera þar fyrir Geir, en hann hafði aldrei neitt siðferði, sveifst einskins.

Manstu hvernig hann fór á bak þér og Sólveigu, og stal ykkar stuðningsmönnum. Plataði þá, og fékk þá til að skrifa undir stuðnings yfirlýsingu á sjálfum sér fyrir 3 sætið í opinberum auglýsingum.... án þeirra vitundar og birti í fjölmiðli sem þú varst aðstoðarritsjóri í ?

Það var gaman þann daginn í vinnuni Björn. Þegar Geir fór á bak ykkur öllum.

sjálfskipaður

Það bar ekki mikið fyrir virðingu eða jafnrétti það kjörtímabilið, ekki margar sjálfstæðiskonur sem komust að í þá daga og þetta var i kringum 1990.

Nei Björn, Geir var aldrei vinur vina sinna þegar hann gerði atlögu að þér og sama var honum um samheldni flokksins.

Við vitum að í herbúðum sjálfstæðismanna er regla nr 1 að halda flokknum saman.

Sjáðu flokkinn þinn í dag.

Geir fannst hann eiga rétt á sætinu sem formaður flokksins, við vitum að það er ekki rétt pólitík. og þó þú hafir haldið því, og hann komist úr 8 sæti uppi það 4 þá var þetta típiskt fyrir eðli hans.

En núna er þinn tími kominn. Nú getur þú sett Geir á sinn stað og bjargað því sem eftir er af flokknum

Og þú veist það. það hlakkar í þér Björn. Ertu næsti formaður flokksins eða ætlarðu að láta þorgerði Katrínu splitta honum í tvennt ?

Hér er smá minning um hvernig Geir lýgur og snýr sannleikanum sér í vil.

Hér er hanns eðli, og norskir hálfbræður hans treysta honum?

Íslendingar gerið þið það ?

Sjáið sjálf hvernig hið Rottna siðspilta eiginhagsmuna sinnaða eðli Geirs H Haarde er.

Ligar Geirs


mbl.is Björn Bjarnason: Ákveðinn misskilningur í gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig þessi frétt breittist Myndir - print screen.

Núna er ég búinn að gagnrýna fréttaflutning mbl.is á þessari frétt í tveimur færslum og verið mjög hreint út og gagnrýnin á vinnubrögð þeirra sem vinna á fjölmiðlinum í sambandi við þessa frétt.

Hefur ljósmyndarinn golli sem vann við fréttina látið skoðun sína og ósætti í ljós við gagnrýni mína.

Ber ég fulla virðingu fyrir skoðunum hans, en þetta er skoðun mín og vona ég að það verði honum og kollegum hans til metnaðar og hvattningar þar sem ansi margir eru sömu skoðunar og ég, eins og ekki hefur farið framhjá neinum í bloggheimum.

Nú ætla ég að sýna ykkur dæmi sem rökstyður gagnrýní mína hér fyrir neðan hvernig sama fréttin brettist 

fyrst eru linkir á gagnrýni mína 1PÓSTURHÉR og 2PÓSTURHÉR

fyrri.jpg

Þetta er fyrri útgáfan af sömu frétt sem allt í einu breyttist í sjá hér fyrir neðan

seinni.jpg

Til virðingar við ljósmyndarann ætla ég að copy pasta mótmæli hans úr comenta kerfinu á bloggi 2 í gagnrýni minni á þessi vinnubrögð og svo svar mitt við því.

Annars hef ég ekkert að bæta við gagnrýni mína á vinnubrögð mbl.is undanfarnar vikur, þið getið lesið það í tvem fyrru póstum ef þið hafið áhuga.

Lifið heil

Stöndum saman.

 1. Mennirnir á myndinni á svölum Kaffi Sólon eru; Friðþjófur tökumaður (áður á Mogga og Rúv), tökumaður Stöðvar 2 með loðhúfuna og Arnór ljósmyndari hjá Fréttablaðinu. Sé ekki neina erlenda fréttamenn þarna.

2. Hörður Torfason sagði í sinni ræðu að fólk ætti að koma saman á Austurvelli næstu laugardaga og ÖSKRA. (come on)

3. Eðli netfrétta er að þær eru skrifaðar á meðan hlutirnir gerast. Fyrsti hópurinn hittist á Hlemmi kl 14.00. Þar byrjuðu mótmælin, fyrst fámenn en síðan vaxandi niður allan Laugaveginn. Mannfjöldinn hefur sennilega verið mestur í kringum Ingólfstorgið og í Lækjargötunni. Sú strolla skilaði sér hins vegar ekki öll inná Austurvöll.

4. Blaðamenn á mbl.is ráða sjálfir hvaða myndskeið frá Reuters eru sett inn á forsíðuna. Þegar skrifuð er íslensk frétt með myndskeiðinu er lögð sérstök áhersla á það myndskeið, eins og í þessu tilviki. p.s. hvað segir blaðamaður Reuters að margir hafi mótmælt?

5. Ekki ætla ég að rífast við þig. Mér finnst bara ömurlegt að kallaður vanhæfur, reynslulaus og undirlægur undir stjórnvöld, allt upphrópanir sem eru eins langt frá mér og hægt er! Helber lygi.

golli-ljósmyndari (IP-tala skráð)

  6 Smámynd: Jóhann Þröstur Pálmason

Það er gott að ná til ykkar golli og vonandi getið þið tekið gagnrýni eins og þið eigið að gagnrýna samfélagið og ekki minnst stjórnmálamenn.

Það er einnig merkilegt að þær fréttir sem þið skammtið þjóðinni er að við séum lýður og ætlum að öskra...

var ekkert annað sem var hægt að koma áhugaverðara til skila í þeim boðskap sem var í gangi ?

gátuð þið í álvörunni ekki komið því áfram til þjóðarinnar sem raunverulega var í gangi ?

Ég veit nákvænlega hvernig þið starfið og tölur rauters eru tölur frá ykkur, það voru fjöldi annara erlendra blaðamanna á staðnum og ber þeim ekki saman við ykkur.

Mér finnst hart að þið getið samið svo miklu betri fréttir fyrir erlendan markað og það þurfi að fara heilan hring til að komast til skila til okkar á erlendri tungu.

Ég vona þetta verði ykkur hvatning, því ég er bara ekki einn með þessa skoðun.

Ég hef ekki hugmynd hver skrifaði þessa frétt sem ég vitna í en ég veit þú tókst myndina og nú viðurkennir þú að strollan hafi ekki skilað sér á austurvöll og ef þú hefur fylgt okkur allann tímann  þú að hafa átt betri myndir sem túlka það sem var í gangi betur. hlýtur

ég setti þessa mynd af sólon til að hafa tengingu við fréttina þar sem myndskeið úr henni er tekin þaðan.

Ég tek það fram að það sem þú tekur sem gagnrýni á þig persónulega er minnst ætlað sem gagnrýni á ljósmyndarann heldur á skrifuð orð um fréttina um mótmælin frá í gær, og hvernig fréttaflutningur er búinn að vera undanfarið af þessum hlutum.

Það er ekki oft sem slík mótmæli eru í gangi hér á frónni með jafn alvarlegum kröfum á þvílíkum suðupunkti og þið hljótið að sjá að þetta er bara byrjunin.

Íslandsagan er að skrifast. Documenterið það betur. Gefið því gaum.

Ef þú hefðir verið á borgarafundinum hér um daginn hefðuru heyrt mikla gagnrýni á blaða og fjölmiðlafólk yfir höfuð.

Ég er bara ekki einn um þessa skoðun.

Jóhann Þröstur Pálmason, 2.11.2008 kl. 22:36

7 Smámynd: Jóhann Þröstur Pálmason

Takk fyrir nöfnin á þeim sem tóku myndir af svölunum á sólon set það undir myndina.

Jóhann Þröstur Pálmason, 2.11.2008 kl. 22:52


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband