Færsluflokkur: Bloggar

Sérplægni Þráins og sjálfskömmtun

Slík hegðun er akkúrat það sem mótmælt var i vetur og haust.

Þetta er atferlisfræði hinna gömlu sérplægnu stjórnmála.

Ef maðurinn segir sig úr þingflokkinum eða hreyfingunni vegna þess að ekki er beygt sig undir hótanir hans, sem engan sáttar eða samstarfs vilja hefur sýnt yfir góðan mánuð, og sí endurtekið ráðist á þremenningana í fjölmiðlun ásamt því að mæta ekki á fundi hreyfingarinnar eða svara fólki.

Þá á hann að skila aftur þessu sæti og gefa hreyfingunni tækifæri.

En nei ekki hann og hann er ekki sá fyrsti.

Sorglegt allt saman.

Hreyfingin sem snérist uppi andhverfu sína og það innann frá og út.

Augljóst að þessi fallega hugmyndafræði virkar ekki.

Vegna vanþroska og bresta mannlegs eðlis.

Annars nenni ég ekki að ræða Borgarahreyfinguna, vonbrigði mín eða skoðanir á henni því ég tel ekki að hún muni lifa þetta af.

Its Game Over.

Njóttu þess að vera utanþingsmaður á alþingi Þráinn.

Þú verður nefnilega mjög líklega aldrei þarna aftur.


mbl.is Þráinn úr þingflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég Fór Til Noregs.

Eftir að hafa verið með þeim fyrstu sem misstu vinnuna orðið atvinnulaus og séð frammá gjaldþrot og barist hatrammlega gegn landráðsstjórn sjálfstæðismanna og samfylkingar yfirgaf ég landið í febrúar.

Það var ekkert annað í stöðunni.

Annað hvort það eða flytja í kjallarann hjá mömmu og bíða eftir gjaldþroti.

Héðan hef ég getað borgað af skuldum mínum og því sem óreiðumenn lögðu á þær, og ekki minnst bílunum okkar 2 sem lýsing og avant halda samkvæmt samningi í gíslingu á íslandi og heimta fulla kaskótryggingar af þó þeir bara standi.

Tekur smá tíma að koma sér fyrir en ég náði því á tveim mánuðum þó ég hafi aðeins farið í fötunum sem ég stóð í.

Konan kom eftir tvo mánuði, hún er komin með vinnu líka.

síðasta mánuð þénaði ég nærri 800 þusund, og er bara málari. Reindar eru föst útgjöld min um 300 þusund, þá húsaleiga og skuldir.

Höfum það eiginlega bara helviti gott hérna, betra en í góðærinu á Ísland þó það sé kreppa hér líka og veðrið er búið að vera frábært.

Er að kom heim eftir 3 daga og ná í köttinn.

Allir eiga betra skilið.

Allir útlendingar fá 17% skattaafslátt í noregi fyrstu 3 árin til að koma sér inni landið. svo eru óteljandi þættir sem eru frádráttarhæfir frá skatti eins og börn, skuldir osf.

Norskir olíudollarar eru stabílir.

það er gott að geta einbeitt sér að þvi að vera bara manneskja og enjoying the human experience


mbl.is Óttast íslenskan spekileka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krabbamein í stjórninni sendir frá sér eiturgusu

Copy pasta hér commenti mínu frá bloggi Gunnars Waage.

Ef þetta er ekki ein sú andlýðræðislega og vanþroskaðasta ákvörðun sem er gerð í nafni stjórnar og hreyfingar af einungis 3 mönnum sem virðast vera þvinga sínar persónulegu skoðanir ósveigjanlegir og ósamstarfshæfir í barnslegu frekjukasti um að reina að fá fram viljann sinn og stjórna ?

Þá veit ég hreinlega ekki hvað kvalifeserar lengur fólk til að segja af sér og láta sig hverfa.

Eitt er vist að svona fljótfæris frekjuköst og einræðis þvingunar taktíkar eru eins og bannvænt krabbamein innann stjórnarinnar og fyrir hreyfinguna.

Ekki kæmi mér það á óvart að þessir einstaklingar væru Þráins sinnar og hefðu hann sem sinn mentor i pólitískri leiðsögn jafnt sem samskiptalega.

Allavega virðast þeir allir hafa það að markmiði sínu að rústa hreyfingunni og gera trúverðugleika hennar að engu.

Svo vil ég bæta við að finnst mér þráinn hafa kostað þessa hreyfingu ansi mikið frá upphafi og stend ég með því sama hvaða skitkast þremenningarnir á þingi fá frá félögum sinum að hér sé heiðarlegt kannski af og til naivt fólk sem hefur einlægan vilja til að láta gott af sér leiða fyrir land og þjóð og hefur lagt mikið á sig þann stutta tíma sem það hefur fengið til þess og hef ég fulla trú á þeim og styð fullkomlega í þessu fárviðri fáránleikans.

Ég bind miklar vonir við Baldvin Jónsson nýkjörinn formann sem ég veit að er gæddur einstökum hæfileikum, heiðarlegur og réttsinn og efast ekki um að fái hann tækifæri siglir hann hreyfingunni útur þessu hafróti inna farsæl gjöful mið. 

 


mbl.is Margrét kalli til varamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næst brenna húsinn til ösku

Velti þvi fyrir mér þegar hinnar verstu fréttir sem boðaðar verði í haust komi í dagsljósið hvort húsaslettarar muni taka argentínu menn sér til fyrirmyndar og brenna niður hús auðmanna og banka.

Hver veit.

Allt getur gerst þegar 40% þjóðarinnar fer að búa við fátækrarmörk.

Og þá á ég ekki við Íslenskan mælihvarða, heldur þriðja heims.


mbl.is Málningu slett á hús Hjörleifs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta það sem býður Íslendinga ? (myndir)

 snjororginal.jpg

Maður bara spyr sig.... hvort að hellabúseta og sauðaþjófnaður komist í tísku aftur...Errm

(Mynd  http://zeranico.com  Model svarttrast)

 2399054615_d19e8c934a_o

Annars er víst ethvað eftir af moldarkofum þegar fólk missir húsin sín..Frown

Mynd svarttrast


mbl.is 18.000 á atvinnuleysisskránni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingarfíffl eða Blábjáni ?

Nú reinir á að kasta sem mestum sandi í augu almúgans til að kaupa sér frið við valdníðslu.

Norski hersérfræðingurinn sem stýrir Geir Haarde eins og strengjabrúðu er kominn með plan hvernig ríkistjórnin getur blekt fólk í landinu um að alt sé undir control og í lagi og nú er hent í okkur beinum svo við höldum kjafti.

Það vill bara svo til að þessi óhæfa stjórn með forustumönnum 2 fyrrverandi stærstu flokkum landsins hefur ekki en náð að ráða lausn á neinum vanda og skapar bara meiri og þar með í eigin flokkum þar sem flokksmenn flýja þá eins og pestina undan yfirganginum og hrokanum.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H Haarde er 2 ömurlegustu og vanhæfustu leiðtogar sem nokkrir flokkar hafa kosið yfir sig og þurftu þau að setja heilt land í rúst áður en þau gátu rústað eigin flokkum.

Þau hafa hingað til neitað að hlusta á fólkið í landinu, en nú eru þau hrædd og þá á að henda í okkur beini, ekki af því þeim datt það í hug. Nei norski hermálasérfræðingurinn ráðlagði þeim það til að róa ólguna í landinu og fá fólk til að gleima.

Nú er spurningin

Ert þú að kaupa þetta kjaftæði og blekkingu ríkistjórnar íslands ?

Ert þú samfylkingarfíffl eða Blábjáni ?


mbl.is Óska eftir launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

110 myndir frá í dag

Hér eru 110 myndir frá í dag. Sé varla neina ástæðu til að blogga lengur þar sem flest allt sem ég tjáði mig um er komið fram á yfirborðið og í umræðuna auk þess sem þjóðin lítur út fyrir að hafa vaknað.

 mun samt henda hér myndum og linkum inn þar til við höfum unnið fullgnægðarsigur.

 myndirnar í heild eru hér http://www.flickr.com/photos/motmlinr6/

hér eru nokkur sampel stelið og notið þessar myndir af vild.

3032458179_e678374147_o3032457871_4d0ac83dbd_o3032457157_ddb032fc32_o3032456249_ef1d8e7ac1_o3033293680_8beb06e7dc_o3033290454_908b828a36_o3033288490_7f0e7b2a03_o3032444299_4e7702ecfb_o3033275164_a018d9bb1d_o3032430211_179fd14f1f_o3033271454_3c052eee88_o3032427403_1ff5566b0e_o


mbl.is Þúsundir mótmæla á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg um Lýðræðið 25Myndir

 Mótmælin hófust stundvíslega kl 12. Var næg þátttaka til að slá hring kringum alþingishúsið og meina þingmönnum inngöngu nema þeir beygðu sig undir hendurnar, ethvað sem þeir þurfa að læra, að beygja sig fyrir fólkinu í landinu þar sem þeir eru þjónar okkar. Aðeins var um afskipti lögreglu af þessu en ekkert vesen, beygðu þeir sig líka. Furðulegt var virðing sumra við þingmenn að þeir sleptu höndum til að sleppa þeim framhjá þar á meðal hinn væmnisjúka Björn Bjarnarson Dómsmálaráðherra. Kallaði ég að Birni og spurði hvenær hann ætlaði að segja af sér en hinn dæmigerði sjálfstæðismaður lét eins og ég væri ekki til sem er mjög dæmigert fyrir viðhorf ríkistjórnina í viðhorfum sínum til þess sem er að gerast hjá þjóðinni.

Eins og Kristus sagði "Á VERKUNUM SKALTU ÞEKKJA ÞÁ"

 Myndirnar 25 má finna í heild hér http://www.flickr.com/photos/skjalborgumlydraedid/

Ykkur er frjálst að nota og stela þessum myndum af vild og hvet ég ykkur til þess.

3025390220_204107d86f_o3025392930_e6bb32664e_o3024568313_8a9b711b21_o3024568769_57ee945d88_o3025395464_5f571d6988_o3024562809_b18f7782eb_o3025391306_ab105c510a_o3025390758_70fa5e8fa7_o3025396390_2d2eb856cb_o3024567841_6182fccb40_o3024566041_825b399f93_o


mbl.is Haldist í hendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

86 myndir frá mótmælunum í dag.

Því miður gat ég ekki sett inná moggabloggið heilt albúm af þessum myndum þar sem ég var búinn að nota allt leyfilegt pláss. Ég reyndi að kaupa meira en það gekk enhvernveiginn ekki i gegn. þá reyndi ég að henda út albúmi af firstu mótmælunum og loda meira upp en það var bara ómuglegt enhvernveiginn.

Ef þið skoðið myndirnar sjáið þið að það voru margskonar mótmæli í gangi í einu. Hverjum sem er, er frjálst að nota og taka þessar myndir af vild

En eg er með þær annarstaðar á netinu

hér er linkur á mótmælin í dag http://www.flickr.com/photos/motmli0811008/

Síðustu helgi http://www.flickr.com/photos/vik_burt_rikistjorn/

Helgin þar áður http://www.flickr.com/photos/nyirtimar2/

Og svo þaug fyrstu http://www.flickr.com/photos/burt_med_david/

Set samt nokkur sampel hér á neðan sem ég linkaði af, af netinu

Njótið

n579426662_1598679_8417n579426662_1598703_5784n579426662_1598707_7350n579426662_1598711_8940n579426662_1598797_7777n579426662_1598654_184n579426662_1598697_3510n579426662_1598784_5478n579426662_1598673_63223014009292_d5bde6d69d_o3013170735_dc2a10f566_o3014024292_2e6407b836_o3013184879_47329188a1_o


mbl.is Greint frá mótmælunum erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ísland Á Sama Stað Og Georgía ?

Nohhh... það er bara næstum sama í gangi í Georgíu og Íslandi...

Frekar betri fréttaflutningur hjá mogganum af þessu hjá Georgíu mönnum en af okkur á Íseynni..

Þetta er ótrúlega lík frétt og ástandið er búið að vera hér og með smá breytingum verður hún eins.

Gæti Hljómað svona...

Um þúsund Mótmælanda komu saman í Reykjavik, höfuðborg Íslands, í dag til að mótmæla stjórnvöldum. Þetta eru fyrstu fjöldamótmælin í landinu frá því átökin við Breta brutust út.

Andstæðingar Geir H Haarde, forsætisráðherra landsins, saka hann um að gera Íslendinga ábyrga fyrir Icesave reikningum Breta sem Íslendingar áttu aldrei þurfa að borga, ásamt stórfeldum yfirhylmingum, lygum og mistök á mistök ofan sem hann neitar að bera ábyrgð á og hafi með því eyðilagt trúverðugleika landsins út á við, gert þúsundir atvinnulausa, keyrt heimilin og fyrirtæki í þrot með stýrivaxta stefnu sinni og hylmt yfir með vanhæfum seðlabankastjóra ásamt að vernda þá sem stungu peningum landsins úr landi.

Hörður Torfason, talsmaður mótmælanda, segir að von sé á frekari mótmælum og að mótmælendur muni ekki gefast upp fyrr en boðað verði til kosninga.

Fyrir um 6 mánuðum leysti lögreglan upp fjöldamótmæli í landinu. Hún skaut gasi á mótmælendur og beitti kylfum og ofbeldi til að leysa upp fjöldann. Þá höfðu mótmæli staðið yfir í marga tíma.

Íslenska þjóðin mun boða í framhaldinu til skyndikosninga um þjóðstjórn ef hún sigrar.

Það hræðir mig hversu líkt þetta er..

 


mbl.is Forsetanum mótmælt í Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband