Fleiri munu verða gjaldþrota og meira atvinnuleysi.
28.10.2008 | 11:55
Lilja Mósesdóttir ræddi um skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir láni til íslenskra stjórnvalda. Þau hefðu verið kölluð aðhaldssöm stjórn peningamála sem þýddi á mannamáli vaxtahækkun.
Þetta væri dæmigert viðbragð hjá sjóðnum við fjármálakreppu. Bent hún á að norsk stjórnvöld hefðu í sinni bankakreppu á síðustu öld gripið til vaxtahækkunar sem hefði leitt til fleiri gjaldþrota og meira atvinnuleysis en ella. Malasía og Chile hefðu hins vegar valið gjaldeyrishöft með skattlagningu í stað vaxtahækkunar og það hefði leitt til grynnri kreppu.
Lilja sagði enn fremur að kreppan nú á Íslandi væri mun alvarlegri en sú sem hefði riðið yfir hin norrænu ríkin og Asíu á síðustu öld. Það sæist á því að lán alþjóðlegra aðila yrðu 60 prósent af landsframleiðslu okkar á meðan Suður-Kórea hefði á sínum tíma aðeins þurft lán sem var 10 prósent af landsframleiðslu. Sagði Lilja enn fremur að lækka þyrfti vexti til að draga úr áhrifum kreppunnar
Lilja Mósesdóttir doktor í hagfræði
Til Hamingju Íslendingar með stefnu ríkistjórnar Geirs Haarde og seðlabankastjórn Davíðs Oddsonar og það sem ósveigjanleiki þeirra gagnvart ykkur og ábyrgðarleysi ásamt vanhæfni er að leiða fram.
núna eru hörmungarnar rétt að byrja.
Íslenska krónan brennur
launin brenna
Við verðum að standa saman
Fyrir börnin okkar
fyrir framtíðina
Fyrir Ísland
SAMEINAÐ ÍSLAND
VIÐ MÓTMÆLUM ÖLL!!!!!!
Láttu þig skipta máli
Meðvirkni eða mótmæli. Mætum á Hlemmi á laugardaginn kl 14:00 og
göngum á Austurvöll - Ekki vera þolandi, vertu þátttakandi - Krefjumst
ábyrgðar, kosningar strax!
Vík burt ríkisstjórn!
Vaxtahækkun vegna IMF | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:39 | Facebook
Athugasemdir
Burt með allt þetta lið
Hólmdís Hjartardóttir, 28.10.2008 kl. 11:58
viva la revolution
U4ea, 28.10.2008 kl. 12:12
Stend með þér.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.10.2008 kl. 13:27
Hvað með að koma niður á jörðina ?
Stefanía, 29.10.2008 kl. 02:30
það er varla hægt að koma harðar niður á jörðina en við gerðum í þessari brotlendingu hagstjórnar okkar.
fólk liggur um í sárum útum allt og það eru buin að vera dauðsföll vegna þessa.
þetta er ekkert í lagi og það eru til aðrar og betri leiðir.
stöndum saman
sameinað island
Johann Trast Palmason, 29.10.2008 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.