Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Heil Hitler.. Meina Össur.

Það er greinilega gjörsamlega óhugsandi að menn séu með aðrar skoðanir en forusta samfylkingarinnar sem dansaði hruna dansinn svo fallega meðan landið sökk i kaf með sjálfstæðisflokknum.

Það er greinilega líka engin leið að mæta einum né neinum eða skoða önnur sjónarmið en síns sjálfs og er þá mjög gott að hafa verið með sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn þar sem ráðherrar samfylkingarinnar fengu kennslu í pólitísku ofbeldi og öðrum hræðsluáróðurs aðferðum til að þvinga vilja sinn fram.

Að hafa ekki látið samfylkinguna bera sína ábyrgð í hruninu og ráðherrum hennar heldur að hafa sæst á sáttarlausn með útskipun örfárra manna eru mestu mistök sem Íslenska lýðveldið hefur gert enda er samfylkingin að vera búin að gera lýðveldið að engu með að afsala frá okkur sjálfstæði okkar

Einhverstaðar las ég það að það væri brot á 40 og 41 stjórnarskrárbroti að leggja skuldir á þjóðina ?

Afhverju gilda lögin í landinu ekki lengur ?

 


mbl.is Ríkisstjórn á suðupunkti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tóm orð ? Popúlismi eða gerist ethvað ?

Maður veit ekkert lengur hverju maður á að trúa, taka alvarlega eftir reynsluna af þessari handónýtu ríkistjórn.

Er nema von.


mbl.is Vill aflétta bankaleynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið bréf til yfirmanna Lýsingar.

 Sendi fyrirtækinu Lýsingu þetta bréf. pósta því hér lika þá kannski skilar það sér á réttan stað þar sem ég fann hvergi net póst föng yfirmanna lýsingar og þurfti að senda þetta á almennt meil.

Til Yfirmanna lýsingar Áframsendist.

¨Þá segir í yfirlýsingunni að sú fullyrðing, að Lýsing hf. sé að leysa til sín leigumuni þegar ekki hefur verið greitt af samningum í einn til tvo mánuði sé ekki rétt. „Lýsing hf. reynir eftir fremsta megni að finna leiðir með sínum viðskiptamönnum svo þeir geti uppfyllt gerða samninga."

Ég vil vitna í þessa yfirlýsingu frá lýsingu Þar sem þetta er ekki mín reynsla af fyrirtækinu og virðast þeir þjónustufulltrúar sem ég hef talað við algerlega skilningslausir á þetta og jafnframt áhugalausir og fela sig bak við reglugerðir og segja ekkert þýði að tala við yfirmenn sína sem jafnframt sendu út þessa yfirlýsingu.

Síðast í dag reyndi ég að tala við þjónustufulltrúa nokkurn um skuld mína gagnvart lýsingu og vildi reina að finna einhverja leið til þess að komast til móts við félagið og byrja að borga skuldir mínar niður aftur eftir skamma hríð.

Ósveigjanleikinn var algjör og heimtaði hún 75 þus kr með sólahringsfyrirvara af manni sem gengur á félagsmálastyrk í augnablikinu og það jafnvel þó ég segði henni að líkur væri til þess að sú staða myndi breytast í næsta mánuði.

Ekki skil ég að fyrirtækið vilji kalla inn verðlausan bil sem keyptur var sem vinnu bíll bil sem þeir fá ekkert fyrir og hrinda mér þannig yfir í gjaldþrot og sitja uppi með allan kostnað sjálfir.

Mín reynsla er af lýsingu að þegar i haust þegar stefndi i óefni hjá mér útaf efnahagsástandinu hafði ég samband við þjónustu fulltrúa fyrirtækisins tilbúin að ræða við þá og leita einhverrar lausnar og svörin sem ég fékk til baka voru hótunarbréf með lögfræðing og svo uppsögn á samning og þó er ég er en með bílinn sem er vita verðlaus.

Það þýðir ekkert að segjast að hafa hringt í símanúmer sem er ekki einu sinni skráð á mitt nafn og skilið eftir skilaboð á því talhólfi þegar eg hef verið með annað í rúmt eitt og hálft ár og ítrekað haft samband við ykkur úr því sem ég nota og fengið þjónustu fulltrúa ykkar til að hringja i það sem er á mínu nafni og nú seinast í dag og varð ég hreinlega að spyrja útí hvaða númer þeir væru eiginlega að hringja í þar sem ég hef ekkert orðið var við slíkar tilraunir þó lýsing skrái þær niður sjálf.

Og að dirfast að segja að það sé á mína ábyrgð er hreinlega ósvífni.

Hverslags viðskiptahættir eru það að koma út í tapi ? Nú það er það sem þjónustufulltrúar ykkar eru að leggja upp fyrir ykkur.

Ég vil gjarnan fá að tala við einhvern sem fær enhverru ráðið og vinnur eftir þessari yfirlýsingu fyrirtækisins til að finna sameiginlega lausn sem er raunhæf.

síminn minn er 8965139

Virðingarfyllst

Jóhann Þröstur Pálmason

 


Ósvífið ?

Hvað með Samson Holdings ?

Á það ennþá eignir (td á laugarveigi og hverfisgötu) og eru ekki sömu eigendur af því ?

Er þetta ekki klassískt dæmi um tvö félög annað fyrir skuldir og hitt fyrir eignir ?

Og nú á að losa sig við skuldirnar í skugga þeirra kreppu og ástands sem eigendurnir voru stórir hlutakendur í ?

Er ég bara hér einn sem ofbýður framkoma eins ríkasta manns heims við eigin þjóð ????

Hvenær ætli svo Geir H Haarde frétti af þessu ?


mbl.is Óskar eftir gjaldþrotaskiptum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tóm Orð Og Ekkert Traust Erlendis. Ríkistjórn Íslands.

Auðvita vilja Pólverjar hjálpa þeim fjölda pólverja sem eru hér. Þessir 2 atvinnulygarar ríkistjórnarinnar segjast ekkert vita og þetta var í öllum pólskum blöðum í morgun og það er 2 tíma munur þar og hér ?

Þeir töluðu við Svíja um þetta lán ?

Afhverju haldið þið að allar þjóðir þurfi að hugsa sig um tvisvar um að lána okkur pening sem þekkja til okkar kerfis og stjórnarhátta eftir tuga ára samskipti ?

Málið er kæru íslendingar að þessi ríkistjórn með Geir H Haarde nýtur einskins traust eða virðingar erlendis fyrir þau ófyrirgefanlegu mistök sem þeir hafa gert. Auðvita tala pólverjar við nágranna þjóðir okkar fyrst ÞEIR VILJA VITA HVORT ÞESSIR PENINGAR SKILI SÉR Á RÉTTA STAÐI OG HVORT ÞETTA SÉ TIL ENHVERS UNNIÐ!!!

Þetta er grátbrosleg staðreynd

Geir er á við mikinn persónulega vanda á alþjóða vettvangi, þó hann reini að blekkja okkur og halda því leindu fyrir okkur.

Ríkistjórnin verður að víkja.

Það er ótrúlegt hvað Björgvin gat bullað um ekkert mar verður ringlaður og næstum sofnar að hlusta á þetta innantóma hjal hans

Og nei það á ekki að fá aðila erlendis frá til að rannsaka hluti hér.

Svo var fullt af tómum orðum

Þetta er yfirgengilega ótrúlegt.

Burt með þessar afætur og atvinnuligara

STRAX!!!

 


mbl.is Geir staðfestir pólska aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

V.R. VeRst Í Heimi

vr_burt_721482.jpg

Ekki bara það að hin siðspillta sjálfsupptekna stjórn vr sé ónýt. Heldur er félagið ónýtt í heild. Það er engin samstaða meðal félaga vr sem voru eins og barnir hundar á vinnustöðum sínum líkt og hvert annað fórnarlamb heimilisofbeldis, til að vinna fyrir skuldum útrásar sjálfstæðismanna undir forustu Björgólfs feðga og Geirs Haarde.

Fulla virðingu mína og stuðning skulu þeir huguðu menn og konur fá sem mættu á staðinn og létu í ljós óánægju sína yfir spillingu og ábyrgðarleysi stjórnar vr í hádeiginu í dag og veit ég um að mun fleiri félagsmenn voru með þeim í huga þó þeir neyddust til að vera á vinnustöðum sínum.

vr_burt_2.jpg

 

 

 

 Ekki sá neinn á skrifstofu vr neina ástæðu til að ræða við félagsmenn sína enda starfar vr fyrir aðra hagsmuni.

Ég legg til að atvinnurekendur gangi á bak hálftíma matartímasamningum við vr næstu viku og hvetji fólk sitt til að taka þátt í að standa upp fyrir rétti sínum og láta stuðning sinn og vilja í ljós í verki ásamt því að öðlast sjálfsvirðingu sína aftur. Það mun skila fyrirtækjunum mun afkastameiri og ánægðari starfsmönnum og ekki minnst kannski bjarga þessu félagi sem hefur brotið á síðustu árum félagsmenn sína gjörsamlega niður og samstöðu milli þeirra

Saga mín og reynsla af vr.

Í hinu svokallaða góðæri var ég starfsmaður í einu af stærstu verslunar fyrirtæki á sínu sviði sem sölumaður.

Ég vann þar í tvö ár. Eftir eitt ár skipti fyrirtækið um eigendur sem lofuðu okkur öryggi og öllu fögru sem þeir sviku. Vr sá ekkert athugunarvert við það.

Allt næsta ár gekk útá smá uppsagnir eingöngu á starfsmönnum með 2 ára starfsreynslu eða meira og í búðinni sem ég vann í var aldrei færri en 5 manns sagt upp á mánuði. Þetta var vegna hagræðingar, engar frekari upplýsingar var þörf því eins og stjórn Vr sagði þá höfðu þeir gert hina frábæru samninga fyrir okkur að fyrirtækin þyrftu ekki að tilgreina ástæður uppsagna vegna þess að við þyrftum það ekki heldur.

HÚRRA!!!

Allir vissu hina raunverulegu ástæðu sem var að fólk með 2 ára starf eða meira hafði of mikil réttindi gagnvart fyrirtækinu og auk þess var hægt að spara peninga á því að ráða inn nýtt fólk með mun minni launaréttindi og þetta lítur voða vel út á blaði. Vr fannst ekkert athugunarvert við slíka starfshætti.

Nú þegar ég var fluttur milli búða var vinnutími minn aukinn að einum þriðja og samt hækkaði ekki talan á launaseðli mínum. Í december var einnig bætt við okkur vinnutíma á sömu launum. Allt þetta eftir samningum Vr um mánaðarlaun.

Það kom líka að því að velja átti trúnaðarmenn og þegar að því kom sat ég hjá yfirmönnum fyrirtækisins þar sem þeir ræddu sín á milli hvern þeir ættu að styðja til slíks. Nokkra vildu þeir ekki sjá því þeir gætu verið með kjaft, en það skipti ekki máli eins og einn yfirmannanna sagði ef þeir hegða sér ekki þá bara rekum við hann, við höfum gert það áður... Svo var hlegið. Allt án athugunarsemda frá vr.

Ég man líka eftir fréttatilkiningu frá vr að ef við yrðum veik í einn dag fengjum við hann ekki borgaðan þar sem brögð hefðu verið að því að fólk misnotaði veikindadaga, þannig fólk varð að taka 2 veikindaga ásamt læknisvottorði ef það ætti að hafa einhvern rétt og þetta fundu þeir upp að sínu eigin frumhvæði. Þá spurði ég mig ? fyrir hverja vinna þessir menn ?

Svo kom að því að jól nálguðust og 2 samstarfsmenn mínir fóru til fjölskyldna sinna út á land að halda gleðileg jól. Til að dekka upp starfsmanna tapið stóðum við tveir eftir í þessari deild aukavaktir til að gæta hag fyrirtækisins milli jóla og nýárs.

Fyrir nýa árið var 5 í viðbót sagt upp, allt starfsmenn með 2 ár uppí tíu. Ég prísaði mig sælan enda leið öllum illa í búðinni þetta árið, við vorum í stöðugu óöryggi um störf okkar sem tölur á blaði ekki persónur fyrir utan það að fyrrverandi verslunarstjóri hafði samið við mig um laun rétt áður en hann hætti sem voru samkvæmt iðnaðarmanna taxta og töluvert hærri en yfirmenn höfðu ætlað sér og hafði verið mál út af því á sínum tíma. Þannig ég bjóst jafnt og þétt við að fá það í hausinn.

Á gamlársdag hringir hjá mer dyrabjallan og er þar einn yfirmanna fyrirtækisins mættur. Hann er með uppsagnarbréf í hendinni og hafði víst gleymt að segja mér upp störfum. Hann var mættur heim til mín svo uppsögnin gæti tekið gildi frá mánaðarmótunum. Uppsagnarbréfið var dagsett nokkrum dögum fyrr  og samkvæmt lögum eiga yfirmenn alltaf að vera 2 saman þegar að uppsögn kemur en þarna var hann einn. Ég vil taka það fram að þetta var góður maður sem hafði einnig útvegað mér vinnu annarstaðar og fékk fyrirtækið til að borga mér út uppsagnarfrestinn uppsögnin var ekki hans ákvörðun.

En þetta var kolólögleg uppsögn og vægast sagt siðlaus. Þegar ég svo hringi í Vr eftir áramótin til að leita réttar míns er mér svarað með kjafthætti og þeir tóku endalaust málstað fyrirtækisins og rétt þeirra. Þar á meðal að ekki þyrfti að tilgreina ástæðu uppsagnar sem var engin. svo var mer vísað á einhvern þjónustu fulltrúa og hefði ég alveg eins getað hringt í vinalínuna því svör og aðstoð var engin. ÞEIM VAR SAMA.

Ég spyr mig fyrir hvern er vr ?

þetta er handónýtt félag og held ég að áhrifaríkustu mótmælin væru að hætta að borga félagsgjöld.

Félagar Vr!!

Standið Saman

Þið eruð félagið en ekki gjörónýt, siðlaus stjórn þess sem arðrænir ykkur peningum og rétti.

HÆTTIÐ AÐ BORGA Í FÉLAGIÐ!!!

STOFNIÐ NÝTT.

Mótmælið þangað til. Gerist sýnileg


mbl.is Klanið burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósvifin Flokkspólitísk Hundasálfræði

Þetta er ótrúlegt, algerlega ótrúlegt.

Hvernig fólk notar aðferðarfræði ríkistjórnarinnar til að koma flokkspólitískum vilja sínum á framfæri og móta skoðanir og hugsun fólks með lákúrulegum uppnefnum sem á aðferðarfræði sína í andlegu ofbeldi sem og einelti.

Ég er alveg sammála þessu fólki að ethvað þarf að gera, en að halda áfram að kjafta það eina sem við höfum sem gjaldmiðil í kaf til að koma stefnu samfylkingarinnar á framfæri er meir en lítið ósvífið og frekar til þess fallið að auka vandan en leysa hann.

Ég get ekki séð að þessi kona sé hæf til að gegna stöðu sinni þar sem hún grefur en frekar undan efnahagnum með orðum sínum.

Ekki það ég sé að taka upp hannskann fyrir sjálfstæðisflokkinn heldur er ég að benda á að það stjórnunar kerfið sem við höfum þurft að búa við á íslandi er ónýtt og við þurfum nýtt fólk með nýa aðferðarfræði.

Ég get ekki séð annað en með svona aðferðarfræði sé verið að keyra hlutina áfram með sömu aðferðarfræði og kom okkur á þennan stað fyrir það fyrsta, undir forustu Geirs Haarde sem er óspar á að nota slíka hunda sálfræði hins mentaða auðvalds til að rugla og stýra góðtrúandi almúganum eftir vilja sínum.

Hann var nú hagfræðingur seðlabankans 1982 og byggði einmitt pólitískan frama sinn á hinni sömu aðferðarfræði auk þess sem hann sveik fólk og gekk ósvífinn á bak því.

Það er komið nóg af slíkum skrípaleik og flokka trúarbrögðum.

Farið að vinna vinnuna ykkar af heilindum og reinið einu sinni að hugsa um hag landsins fram fyrir ykkar eigin og flokkana.

Hugsið um hina Íslensku þjóð í dag og framtíð hennar.

Verið heiðarleg

Talið skýrt rétt fram

Nýtt fólk

Nýa aðferðarfræði


mbl.is Koma „krónulufsunni" í gang á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALSHERJAR VERKFALL.

Íslendingar nú er komið nóg.

Ríkistjórnin ætlar að greiða öllum erlendum aðilum með ykkar peningum allar innistæður sínar með vöxtum út úr þrotabúi einkarekins fyrir tækis sem við þurftum aldrei að bera ábyrgð á.

Og hvað ætla þeir að gera fyrir okkur ?

EKKERT!!!

ALLS EKKERT!!!

Það hafa verið gerð mistök á mistök ofan og engin gengst við ábyrgð.

VIÐ KREFJUMST ÞJÓÐARSÁTTAR.

Kröfur okkar ættu að vera

Burt með verðtryggingu, lækkun stýrivaxta, og leiðréttingu á lánum og vöxtum þeirra jafnvel afskriftir og stór hluti þeirra frystur eftir þörfum almenings vegna ástandsins.

Að peningar sem við áttum í lífeyrissjóðum og viðbótarlífeyrissjóðum ásamt öðrum sjóðum bankana sem áttu að vera gjörsamlega öryggir verði okkur bættir upp að við njótum sama réttar og þeir sem við höfum lofað fullum bótum.

Að þeir sem misstu fasteignir sínar, hús og vinnu og lentu í gjaldþroti fái uppreisn æru og verði þurrkaðir útaf vanskilaskrám og gjaldþrotaskrá

Að fólk sem bar ábyrgð á þessu verði dregið fyrir dóm og eignir okkar teknar af því.

Að hreinsað verði til í stjórnsýslukerfinu.

Að hreinsað verði til í yfirstjórn verkalýðsfélagana og þá sérstaklega Vr

Að laun og eftirlaun þingmanna og ráðherra verði leiðrétt eftir töxtum ríkisins og þeir njóti einnig sömu lífeyriskjara og restin af fólkinu í landinu.

Til að þetta geti orðið verður öll ríkistjórnin að víkja og þjóðstjórn taki við þangað til það verði boðað til nýrra kosninga.

Að allir þeir þingmenn sem tengjast þessum málum verði tafarlaust settir frá og gert óafturkvæmt í stjórnunarstöður aftur sem og alþingi íslendinga.

Seðlabankastjórnin verður einnig að víkja.

Að þeir aðilar sem fundnir verði sekir sæti dómi um landráð og sitji af sér ásamt þess að verða skyldaðir í samfélagsþjónustu.

Til að þetta geti orðið þurfum við að standa saman og

Hætta að borga af lánunum.

Leggja niður vinnu og boða til

ALLSHERJARVERKFALLS


mbl.is ASÍ lýsir furðu og hneykslan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvita eru stjórnvöld ábyrg en taka þaug ábyrgð ?

Ég er svona 50% ánægður með þetta hjá samiðn.

Auðvita á stjórn sem er ábyrg að segja af sér.

það á að krefjast þess að þeir sem komu okkur í þetta taki ábyrgð og segi af sér.

Ekki að byðja þá um lausn á vandanum sem er afleiðing af þeirra stefnu og hugmyndafræði.

Afhverju lýsir engin yfir vantrausti á þessa ríkistjórn á Alþingi þegar þessir ríkistjórn hefur gerst sek um ófyrirgefanleg mistök á mistök ofan og eru rúinn öllu trausti bæði hér heima og í alþjóðasamfélaginu ?

Geir sagði sjálfur

 Ekki benda á mig

ÉG MÆLI MEÐ AÐ ÞIÐ TAKIÐ HANN Á ORÐINU!!!


mbl.is Segir stjórnvöld ábyrg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama fólkið er sömu vandamálinn fast í sömu hugsuninni

Já Þór það er ethvað sem verður að gerast.

EN ÞAÐ MUN EKKI GERAST MEÐ ÞAÐ RÍKISVALD SEM HEFUR STÝRT HÉR SÍÐUSTU 17 ÁR.

Sama fólkið er sömu vandamálinn fast í sömu hugsuninni.

Geir hefur td ekki skipt um taktík og stefnu síðan hann var hagræðingur seðlabankans 1982. 

Og sjáðu hvar við erum stödd í dag og hvaða traust og virðingu við njótum á alþjóðavettvangi eftir þá kynslóð af tækifærissinnum sem situr í ríkistjórn ?

Svo ég vitni í Ögmund Jónason af bloggsíðu hans í dag http://www.ogmundur.is/news.asp?ID=657&type=one&news_ID=4226

Tillögur VG hefðu sparað hundruð milljarða!
Hvað tillögur okkar fram til þessa áhrærir nefni sem augljósasta dæmið frumvörp um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarsjóða, sem komið hefðu í veg fyrir Icesafe henykslið. Ef þessi lagabreyting hefði verið samþykkt hefðu verið líkur á að þjóðinni hefðu sparast hundruð milljarðar! Icesafe reikningarnir gengu nefnilega út á að fá til ráðstöfunar sparifé til að fóðra óseðjandi fjárfestingarófreskju sem átti líf sitt undir því að fá stöðugt fjármagnsstreymi i til að viðhalda sér.

Á þetta benti ég á Alþingi í gær.

Geir fer með staðlausa stafi
Geir H. Haarde brást þá við á eftirfarandi hátt: „Ef það yrði skoðað hvernig lög um regluverk á fjármálamarkaðnum hefðu verið afgreidd á Alþingi á undanförnum árum allt frá því að við gerðumst aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu kæmi í ljós að flestöll lagafrumvörp um þetta efni hafa verið samþykkt samhljóða út úr þinginu, að hvorki Vinstri grænir, forverar þeirra né aðrir stjórnmálaflokkar hafi gert veigamiklar athugasemdir við það regluverk. „

Þetta er grófur útúrsnúningur og þannig starfar þessi ríkistjórn hún heldur sig fast í aðferðarfræði sem löngu er hætt að virka og festir sig í tómum orðum án verka.

Þaug elska að tala og vita enga þá skemmtun ánægjulegri en hlusta á bullið í sjálfum sér meðan þaug þiggja í laun peninga skattgreiðenda fyrir.

Alþingi þarfi sannarlega á sömu hugarfarsbreytingu  að halda þannig að uppgjör þings í þinglok snúist ekki alltaf um hver talaði mest. Það er rétt hjá þér þór.

En til að það getir orðið þarf þetta duglausa sjálfsmiðaða ráðherralið að víkja, og flokkarnir þurfa að stokka sig upp með nýu fólki og nýum markmiðum. 

RÍKISTJÓRNIN VERÐUR AÐ VÍKJA OG TIL NÝRRA KOSNINGA ÞARF AÐ BOÐA SEM FYRST.

Það er kristal tært að ríkistjórn íslands undir forustuGeirs Haarde og vernd samfylkingarinnar mun ekki hugsa hlutina upp á nýtt og beita skapandi hugsun, né verða framtaksaðili á sviði nýsköpunar þar sem þetta lið situr fast við sinn keip ábyrgðarlaust og er meira í mun að halda í stóla sína og flokksvöld heldur en hag borgarana og landsins sjálfs.

Kæru Íslendingar. Þetta er mjög einfalt.

EF EKKERT BREYTIST, ÞÁ BREYTIST EKKERT.

 


mbl.is Mikilvægt að hugsa hlutina upp á nýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband