Ómar hafði val og finnst mér að hann ætti að segja starfi sínu lausu.

Hver trúir því að það sé svo mikið ónæði af gæludýrum fólks, í smábæjum eins og Raufarhöfn og Húsavík að síminn stoppi ekki hjá "MEINDÝRAEYÐINUM" vegna þessa? Og sé hann tilneyddur að keyra sveittur um allar sveitir til að drita höglum á saklausa meinleysingjana sem eiga sér ekkert skjól fyrir honum, nema kanski  stað í hjarta flest allra barna jafnframt því sem þaug eru á við börn fyrir eigendur sína, já eg er að tala um gæludýr! Hina mikklu aðsteðjandi ógn Húsavíkur og Norðurþings Sem Ómar Örn meindýraeyðir neyðist til þvingaður af Tryggva Jóhannssyni og Norðurþingi til að tæta í sundur á götum og sveitum úti og það rétt fyrir framan heimili eigenda gæludýrana sem hann er neyddur til að aflífa.

Þvílík fásinna að láta slíkt út úr sér og halda að sér verði trúað, og ef það er ekki hægt að vera með dýr á landsbyggðinni? hvernig í ósköpunum er það  þá hægt á höfuðborgarsvæðinu ? og hvar ætti það þá annarstaðar að vera hægt ?

Nei 

Þessi heimilisköttur var skotinn með einbeittum brotavilja gegn dýraverndunarlögum landsins, og með hrokafullri fyrirlitningu fyrir tilfinningum annarra, ásamt algeru virðingarleysi fyrir samborgurum sínum til að þvinga fram með misbeitingu valds vilja Tryggva Jóhannssonar sem hefur bannað gæludýrahald utan dyra heimilanna á landsbyggðinni þar sem Norðurþing fer með völd.

Það var meinlaust gæludýr í leik, sem nálgaðist í sakleysi sínu og forvitni, Ómar Örn Jónsson  sem var dritað niður miskunnarlaust með höglum! og það gerði Ómar með ísköldu blóði beint fyrir framan heimili Dýrsins! slíkt að það meir og minna tættist í sundur og lítið sem ekkert varð eftir af því. Þar fyrir utan gerði hann þetta fyrir framan annan kött frá sama heimili sem með naumindum gat komið sér undan hinum byssuglaða Meindýraeyði Norðurþings

HVERNIG GETUR MAÐURINN REINT AÐ RÉTTLÆTA SLÍK VINNUBRÖGÐ?

OG ER ÞAÐ SVONA MENN SEM RÍKIÐ VILL HAFA Í VINNU ?

ER EKKI KOMIÐ NÓG AF SVONA EINS OG ÞESSUM SEM SKAUT Á HVALI HÉR FULLUR YFIRLÝSINGA FYRIR SÆNSKA SJÓNVARPSTÖÐ ???? 

Er það þetta sem við viljum ? 

Í svo litlu bæjarsamfélagi ætti ekki að fara milli mála hver á hvaða dýr og hvert þeirra er heimilisdýr eða flækings.

Það fer ekki milli mála að þetta er gert með vilja, og þýðir ekki að skýla sér bakvið að hafa verið að gera vinnuna sína sem eithvað fórnarlamb, því hinn sami hafði val um aðferðir osf.

Fyrir utan að hann hefur alls ekkert löglegt leyfi til að aflífa gæludýr þó  Tryggvi Jóhannsson sem þiggur laun frá sköttum samborgara sinna og gegnir stöðu sem framkvæmdarstjóri og þjónustufulltrúi Norðurþings, hafi verið að sýna bæjarbúum vald sitt og reina að hræða og þvinga þessi lög með valdi yfir á þá með svo kallaðri sjokk óttastjórnun.

Þvílíkur Þjónustufulltrúi sem bæjarbúar eiga þar að í skjóli framsóknarflokksins 

Þetta er ekkert nema valdníðsla og fyrirlitning fyrir lífi og ætti að afturkalla slík fásinnu lög til baka sem urði þessa valdandi og setja báða þessa vanhæfu menn af.

 II. KAFLI

ALMENNT UM AÐBÚNAÐ GÆLUDÝRA. 

8. GR.
AFLÍFUN.

AÐEINS DÝRALÆKNAR MEGA AFLÍFA GÆLUDÝR, NEMA Í NEYÐARTILFELLUM ÞEGAR EKKI NÆST Í DÝRALÆKNI OG ÆTLA MÁ AÐ SJÚKDÓMUR DÝRS EÐA MEIÐSL VALDI ÞVÍ ÓBÆRILEGUM KVÖLUM EÐA SÉU BANVÆN. 

Þetta hefði Ómar átt að vita þegar hann valsaði um með haglabyssu sína fyrir framan heimili fólks.

Hér með hafa Húsvíkingar tilvísun til laga til að ganga til sýslumanns og leggja fram formlega kæru á hendur þessum mönnum.

Samt finnst mér að Dýraverndunarsamtökin ættu líka að sjá sóma sinn í að gera hið sama í stað þess að mótmæla bara verknaðinum a vísi.is

Vinnubrögð þessara manna eru Íslendingum til skammar og meigum við þakka fyrir að ekki voru börn nálægt sendiboða Tryggva þegar höggl og kattarhræ dreifðust utum allar áttir. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Takk fyrir þessa færslu Jóhann. Ætla þeir ekki bara að gefa út skotleyfi á allt kvikt ?

Finnur Bárðarson, 9.5.2009 kl. 17:09

2 identicon

Það væri gaman að heyra í fleiri Húsvíkingum varðandi ágang heimiliskatta.

Kolla (IP-tala skráð) 9.5.2009 kl. 17:11

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þessir Húsvíkingar virðast ekki vera í lagi. Hræddir við hunda og ketti. "ágangur heimiliskatta" snilld :)

Finnur Bárðarson, 9.5.2009 kl. 17:41

4 Smámynd: Johann Trast Palmason

Humm þessi færsla kemur ekki sem tenging við fréttina sem hún var skrifuð við ??

Eru menn a mbl alveg að missa það ?

Johann Trast Palmason, 9.5.2009 kl. 21:04

5 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ég ólst upp í þorpi þar sem ákveðið var að gera átak í að drepa alla flækingskettina - þeir tóku auðvitað líka heimilisketti með í þessari hreinsun sinni. Árangurinn var slíkur hjá haglabyssuglaða karlinum að þorpinu launaðist grimmdin með rottufaraldri.

Birgitta Jónsdóttir, 10.5.2009 kl. 09:25

6 Smámynd: Johann Trast Palmason

Í Reykjavík voru notaðar gildrur til að fanga ketti ef fólk kvartaði undan flækingsköttum og voru allir kettir fangaðir í þær og færðir til kattholts þar sem hægt var að nálgast þá aftur gegn vægri borgun lausnarfés.

Kannski ekki alveg málið, en ethvað sem Norðurþing ætti að skoða ef þetta er svona mikið vandamál hjá þeim.

Þegar svartidauðinn breiddist út um Evrópu hér áður fyrr áttu kettir einmitt undir högg að sækja vegna áróðurs kirkjunnar gegn þeim (einkvað sem því miður eimir ennþá eftir í mörgum og notast sem réttlætingar og fordómar fyrir mikið ógeðfalt atferli og framkomu gagnvart þessum dýrum) 

Það sem fólk fann út á miðöldum undir forustu réttrúmaðar kirkjunar sem var á sama stað og Norðurþing er fyrir húsvíkinga núna er að Kettir og hundar væru að breiða út pláguna og var þessum dýrum miskunnarlaust slátrað ethvað sem varð til þess að svakalegur rottufaraldur breiddist út um alla Evrópu og það voru vist rotturnar sem breiddu út smitið og tugir prósentna fleiri dóu úr plágunni þess vegna en vera þyrfti.

Orð þin Birgitta mintu mig á þetta og kannski er rottuplága það sem Tryggvi Jóhannsson og Norðurþing er að óska eftir og tel ég varla að það verði líklegt til árangurs til álvers á Húsavík ef það er það sem Tryggvi sækist eftir 

Hann gerir sér kannski ekki grein fyrir með svínaflensu í loftinu að rottuplága gæti í versta falli verið mjög árangursrík til að fækka íbúum Norðurþings og skilið staði eftir í auðn

Jafnvel með nafnbreytingar sem Rottuvík í för með sér gæti það haft  og hver vill búa í Rottuvík eða ferðast þangað ?

Nei þá er nú skömminni skárra að hafa nokkra ketti malandi úti á götum þorpsins

Johann Trast Palmason, 10.5.2009 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband